
Skagamaðurinn Jóhannes Þór Harðarson er aðstoðarþjálfari norska knattspyrnuliðsins Start – sem náði þeim árangri á dögunum að tryggja sér sæti í efstu deild á ný.
Þetta er í þriðja sinn sem Jóhannes Þór fer upp í efst deild með Start sem þjálfari en liðið er frá borginni Kristiansand á suðurströnd Noregs sem er fimmti fjölmennasti bærinn í landinu.
Start var stofnað árið 1905 og liðið varð norskur meistari 1978 og 1980. Árið 2005 varð liðið í öðru sæti úrvalsdeildarinnar. Nánar hér:

Jóhannes Þór er í ítarlegu viðtali á fotbolti.net – smelltu hér til að lesa.
Jóhannes Þór lék með ÍA á sínum tíma og á að baki A-landsleiki með Íslandi. Hann var atvinnumaður í Hollandi en lék í mörg ár með Start sem atvinnumaður – og hefur starfað sem knattspyrnuþjálfari eftir að ferlinum lauk.









