
Tveir þjálfarar úr röðum Fimleikafélags ÍA hafa verið ráðnir í landsliðsþjálfarastöður fyrir Evrópumótið í hópfimleikum. EM fer fram í október á þessu ári og fer fram í Finnlandi.
Þórdís Þöll Þráinsdóttir, er þjálfari stúlknalandsliðsins á stökkáhöldum, og Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir er þjálfari blandað liðs unglinga í gólfæfingum.

Skagamaðurinn Helgi Laxdal Aðalgeirsson er þjálfari á stökkáhöldum hjá blönduðu liði unglinga, en hann er þjálfari hjá Stjörnunni.
Fimleikasambandið stefnir á að senda tvö til þrjú A-landslið á mótið, en ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðum um hvort verði sent blandað og/eða karlalið, en það mun skýrast á næstu mánuðum. Stefnt er á að senda þrjú lið í flokki U-18, stúlknalið, blandað lið unglinga og drengjalið.
Landsliðsþjálfarar 2026
Kvennalið:
Kristinn Þór Guðlaugsson, stökkáhöld
Michal Říšský, gólfæfingar og stökkáhöld
Andrea Sif Pétursdóttir, gólfæfingar og stökkáhöld
Blandað lið/karlalið fullorðinna:
Marcus Schrøder, stökkáhöld
Stefán Ísak Stefánsson, stökkáhöld
Yrsa Ívarsdóttir, gólfæfingar
Þórey Ásgeirsdóttir, gólfæfingar
Stúlknalið:
Þórdís Þöll Þráinsdóttir, stökkáhöld
Viktor Elí Sturluson, stökkáhöld
Karítas Inga Jónsdóttir, gólfæfingar
Blandað lið unglinga:
Helgi Laxdal Aðalgeirsson, stökkáhöld
Ylfa Sól Guðmundsdóttir, stökkáhöld
Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir, gólfæfingar
Drengjalið:
Tomas Bekkavik, stökkáhöld
Halldór Hafliðason, stökkáhöld
Heiðrún Ósk Sævarsdóttir, gólfæfingar








