
Ingi Þór Sigurðsson og Ármann Ingi Finnbogason hafa skrifað undir samninga hjá nýjum liðum – en þeir hafa verið samningsbundnir Knattspyrnufélagi ÍA undanfari ár.
Ármann Ingi, sem er fæddur árið 20024, gekk í raðir Íslandsmeistaraliðs Víkings í Reykjavík, en kantmaðurinn hefur leikið sem lánsmaður hjá Grindvíkingum í Lengjudeildinni undanfarin tvö tímabil. Ármann gerði samning til fjögurra ára við lið Víkings. Á síðustu leiktíð skoraði Ármann Ingi fimm mörk í 18 leikjum fyrir Grindavík.

Ingi Þór, sem er einnig fæddur árið 2004. hefur samið við Grindavík en hann lék þar sem lánsmaður á síðustu leiktíð. Hann lék 21 leik með Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra og hann skoraði 3 mörk.









