Orkuveita Reykjavíkur óskaði nýverið eftir borunarleyfi vegna hitastigsborana í landi Akraneskaupstaðar – en Skagafréttir fjölluðu um málið í byrjun janúar á þessu ári. Nánar hér: 

Í dag var greint frá því á vef Akraneskaupstaðar að verkefnið fari í formlegt ferli, þar á meðal grenndarkynningu, og að því loknu gætu framkvæmdir hafist.

Á vef Veitna segir að tveir staðir á Akranesi séu taldir líklegastir til að finna heitt vatn, annars vegar við Skarðsbraut, nær Innesvegi, en hins vegar við Jaðarsbakka við bílastæðið við Langasand. Í fyrstu tilraun verður borað við Jaðarsbakka. 

Veitur eru með skýra tímalínu fyrir borun á rannsóknarholu við Jaðarsbakka. Áætlun gerir ráð fyrir að borun taki sex vikur. Frágangi á svæðinu á að ljúka fyrir mánaðarmótin maí-júní. Veitur hafa ákveðið að ef tímaramminn fyrir undirbúning verður knappur þá verði borun frestað til hausts.

Á vef Veitna kemur eftirfarandi fram; 

„Borholan verður staðsett við hlið bílastæðisins við Langasand þar sem stiginn og sturtan eru við sandinn. Bílastæðinu verður lokað á meðan unnið er, en aðkoma sjúkrabíla verður tryggð að íþróttasvæðinu og þyrlupallinum. Göngu- og hjólastígur meðfram sjónum verður opinn allan tímann og það sama á við um aðgengi að sandinum. Efri stíg verður lokað á meðan en hjáleið sett upp.

Til að setja upp borpall við bílastæðið þarf töluverðan undirbúning með greftri og stórum vinnuvélum. Áhersla er lögð á öryggi við vinnusvæðið, bæði vegfarenda og starfsfólks. Undirbúningur tekur um fjórar vikur og umfangið er töluvert enda þung tæki sem notuð eru.

Borinn sem notaður verður, er rafknúinn og er þar af leiðandi mun hljóðlátari en borar sem almennt hafa verið notaðir. Allra nánasta umhverfi mun þó heyra í bornum og Veitur gera það sem hægt er til að takmarka hljóðin sem berast.

Veitur telja nokkrar líkur á að heitt vatn finnist á þessum stað á Akranesi og í því magni að það sé góð viðbót við hitaveituna á Skaganum.“

Nánar á vef Veitna, smelltu hér: