Þorrablót Skagamanna fer fram í kvöld – 7. febrúar 2026 í íþróttahúsinu við Vesturgötu.

Blótið nýtur mikilla vinsælda og er í dag ein stærsta skemmtun hvers árs á Akranesi. Allur ágóði af blótinu rennur til íþrótta – og félagsstarfs á Akranes. 

Skagafréttir verða að venju með myndavélina á lofti á blótinu.

Og eru gestir hvattir til þess að láta ljós sitt skína á hefðbundnum stað í anddyri íþróttahússins. 

Þetta er í sjöunda sinn sem Skagafréttir skráir mannlífssöguna og geymir myndasafn frá þessum viðburði í hæstu gæðum á myndavef bæjarfréttamiðilsins á Akranesi. 

Hér fyrir neðan eru myndasöfn fyrri ára á myndavef Skagafrétta.