
Akraneskaupstaður leggst hart gegn þeim áformum að gjaldtaka verðin hafin á ný í Hvalfjarðargöngunum.
Þetta kemur fram í umsögn kaupstaðarins um frumvarp sem liggur fyrir Alþingi um stofnun innviðafélags ríkisins.
Viðskiptablaðið greindi fyrst frá.

Kaupstaðurinn bendir á að í 4. gr. frumvarpsins sé opnað fyrir heimild til fjármálaráðherra að færa þegar byggð samgöngumannvirki til hins nýja félags.
„Ekki þarf að efast um, eins og komið hefur fram í opinberri umræðu og greinargerð um ákvæðið, að þar er m.a. horft til Hvalfjarðarganga. Með öðrum orðum boða þessi frumvarpsdrög að með samþykkt þessa frumvarps verði á ný verði hafin gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum,“ segir í umsögninni.
„Akraneskaupstaður leggst eindregið og hart gegn þeim áformum.“








