
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi samþykktu í kvöld lista kjörnefndar um skipan sæta á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar.
Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs, verður áfram í oddvitasætinu. Bjarnheiður Hallsdóttir skipar annað sætið og Guðmundur Ingþór Guðjónsson verður í þriðja sæti – líkt og í síðustu kosningum þar sem að Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa í bæjarstjórn.

Viktor Elvar Viktorsson er í fjórða sæti og Ragnheiður Helgadóttir er í því fimmta.
Listinn er þannig:
1: Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
2: Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri
3: Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi
4: Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður
5: Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
6: Emil Kristmann Svævarsson, framkvæmdastjóri
7: Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri
8: Erla Karlsdóttir, aðalbókari
9: Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna
10: Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
11: Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur
12: Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi
13: Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi
14: Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður
15: Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri
16: Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
17: Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri
18: Ólafur Adolfsson, alþingismaður.








