Listi Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 2026 var opinberaður í gær. 

Miklar breytingar eru á listanum miðað við kosningarnar fyrir fjórum árum.

Alls eru 18 á framboðslistanum en 6 þeirra voru í framboði fyrir fjórum árum – aðrir eru nýir á lista. 

Líf Lárusdóttir leiðir listann í annað sinn – en Bjarnheiður Hallsdóttir, er í öðru sæti. Guðmundur Ingþór Guðjónsson er í þriðja sæti líkt og fyrir fjórum árum og Viktor Elvar Viktorsson er í fjórða sæti – en hann er nýr á lista líkt og Bjarnheiður.  

Einar Brandsson, sem hefur setið í bæjarstjórn í 16 ár, er ekki á listanum en hann var annar á lista fyrir fjórum árum.  Þórður Guðjónsson, sem skipaði 5. sætið í síðustu kosningum, er ekki í framboði í ár. 

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2026; feitletruð nöfn eru ný á lista. 

  1. Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
  2. Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri
  3. Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi
  4. Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður
  5. Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
  6. Emil Kristmann Svævarsson, framkvæmdastjóri
  7. Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri
  8. Erla Karlsdóttir, aðalbókari
  9. Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna
  10. Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
  11. Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur
  12. Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi
  13. Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi
  14. Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður
  15. Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri
  16. Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
  17. Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri
  18. Ólafur Adolfsson, alþingismaður.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2022. Feitletruð nöfn eru í framboði í kosningunum í ár. 

  1. Líf Lárusdóttir, markaðsstjóri
  2. Einar Brandsson, tæknifræðingur
  3. Guðmundur Ingþór Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  4. Sigríður Elín Sigurðardóttir, sjúkraflutningakona
  5. Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri
  6. Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunafræðingur
  7. Anna Maía Þráinsdóttir, verkfræðingur
  8. Einar Örn Guðnason, vélvirki
  9. Bergþóra Ingþórsdóttir, félagsráðgjafi
  10. Guðmundur Júlíusson, tæknimaður
  11. Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
  12. Erla Karlsdóttir, deildarstjóri
  13. Daníel Þór Heimisson, bókari
  14. Erla Dís Sigurjónsdóttir, héraðsskjalavörður
  15. Helgi Rafn Bergþórsson, nemandi
  16. Elínbjörg Magnúsdóttir, verkakona
  17. Ólafur Adolfsson, lyfsali
  18. Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri