
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram þann 28. febrúar á Egilsstöðum. Um er að ræða 80. þing sambandsins.
Þorvaldur Örlygsson gefur kost á sér að nýju í embætti formanns en ekkert mótframboð barst til kjörnefndar KSÍ.

Skagamenn eru fjölmennir í aðalstjórn KSÍ með alls þrjá af alls níu fulltrúum í stjórn, og Skagakonan Sigrún Ríkharðsdóttir verður áfram í varastjórn KSÍ.
Pálmi Haraldsson, fyrrum leikmaður ÍA, verður áfram í aðalstjórn KSÍ og Sigrún Ríkharðsdóttir, einn dyggasti stuðningsmaður ÍA, verður áfram sem varamaður í stjórn KSÍ.
Kjörtímabili þeirra lýkur á þinginu sem framundan er – en þau gefa bæði kost á sér líkt og engin mótframboð bárust.
Skagamennirnir Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Heimir Fannar Gunnlaugsson voru kjörnir í stjórn KSÍ í fyrra og eiga því eitt ár eftir af kjörtímabilinu.
Engar breytingar verða gerðar á stjórn KSÍ þar sem að engin framboð bárust og allir í stjórn og varastjórn gáfu kost á sér að nýju.
Stjórn KSÍ verður því þannig skipuð.
Þorvaldur Örlygsson, formaður.
Edvard Börkur Edvardsson
Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Heimir Fannar Gunnlaugsson
Helga Helgadóttir
Ingi Sigurðsson
Pálmi Haraldsson
Tinna Hrund Hlynsdóttir
Þorkell Máni Pétursson
Varastjórn:
Hildur Jóna Þorsteinsdóttir
Jón Sigurður Pétursson
Ólafur Hrafn Ólafsson
Sigrún Ríkharðsdóttir
Sveinn Gíslason
Sigurður Þór Sigursteinsson hefur verið landshlutafulltrúi hjá KSÍ undanfarin ár – en hann gefur ekki kost á sér að þessu sinni.








