Björgunarfélag Akraness hefur fengið afhent björgunarskipið Gísla Jóns af Björgunarbátasjóði Vestfjarða á Ísafirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins. 

Þar kemur eftirfarandi fram: 

„Framundan er menntun og þjálfun áhafna á nýtt skip. Annað og stærra skip krefst mikillar vinnu við að tileinka sér stjórntök, þekkja vélbúnað og skilja hvernig skipið bregst við hinum ýmsu aðstæðum. Björgunarfélag Akraness býr yfir miklum mannauði. Í dag eru um 10 skipstjórar í félaginu sem hafa full réttindi til þess að stjórna skipi á stærð við Gísla Jóns. Einnig eru fimm félagar í námi til skipstjórnarréttinda. Einnig þarf réttindafólk til þess að sinna vélbúnaði um borð í skipinu. Þegar sá hópur sem er tilbúinn til þess að manna skipið, hefur lokið þjálfun í notkun búnaðarins verða um 10 manns með þau réttindi sem þurfa til þess að sinna vélgæslu um borð. Svo er stór hópur sem er tilbúinn til þess að manna aðrar stöður. Það er töluverð eftirvænting hjá félögum í Björgunarfélagi Akraness yfir komu skipsins og væntanlega verður eitthvað meiri umferð um Akraneshöfn á vegum Björgunarfélags Akraness næstu misseri.“

„Í undirbúningi að þessum kaupum hefur Björgunarfélag Akraness leitað leiða til þess að fjármagna kaupin og einnig aukin rekstrarkostnað. Þar sem félagið er ekki inn í björgunarskipa hópi Slysavarnafélagsins Landsbjörg og nýtur þar með ekki þess ríkisstuðnings sem þau skip njóta, er það fyrst og fremst nærsamfélag Björgunarfélagsins sem styður vel við þetta verkefni. Félag sjómanna á Akranesi ásamt sveitarfélögunum, Akranesbæ og Hvalfjarðarsveit hafa nú þegar samþykkt að styðja við verkefnið. Einnig hafa fyrirtæki og einstaklingar lagt verkefninu lið. Meira þarf samt til og áfram verður haldið með að afla fjár til kaupanna og rekstursins. Einn mikilvægasti liðurinn í þessari söfnun er framlag íbúa til reksturs Björgunarfélags Akraness í formi skilaskyldra umbúða. Sú fjáröflun er okkur mjög mikilvæg og auðvelt fyrir íbúa að rétta okkur hjálparhönd þar.“