Landsleikur Íslands og Litháen í körfuknattleik karla fór fram í gærkvöld í Laugardalshöll.

Leikurinn fer í sögubækurnar sem einn eftirminnilegasti íþróttaviðburður allra tíma – en Ísland vann upp mikið forskot Litháen á lokakaflanum, og Elvar Már Friðriksson tryggði sigurinn á lokasekúndunni. 

Stemningin í Laugardalshöll var engu lík. Stuðningsfólk Litháen voru í meirihluta en íslenska stuðningssveitin lét vel í sér heyra. 

Í aðdraganda leiksins var kraftmikill hópur úr stuðningssveit ÍA kölluð til af Körfuknattleikssambandinu, KKÍ. Verkefni þeirra var að láta ljós sitt skína á áhorfendapöllunum. Það verkefni leystu strákarnir af Skaganum með glæsilegum hætti.