Það verður mikið um að vera í Akraneshöllinni laugardaginn 28. mars – þar sem að Ultraform og ÍA standa að 8×8 Paraþrekmótaröð. 

Keppnin hefst kl. 9:30 laugardaginn 28. mars. 

Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða parakeppni. Í ár verður boðið upp á þrjá keppnisflokka í fyrsta sinn, karlaflokkur, kvennaflokkur og blönduð lið. 

Sigurjón Ernir Sturluson, eigandi Ultraform og einn fremsti utanvegahlaupari landsins, segir að mikil tilhlökkun ríki hjá skipuleggjendum mótsins. 

„Keppendur hlaupa saman 3 hringi inní Akraneshöllinni eða samtals 1 km og að hlaupinu loknu tekur við keppnisgrein. Og framkvæma keppendur þetta í átta skipti í keppninni,“ segir Sigurjón Ernir. 

Eins og áður segir hefst keppnin kl. 9:30 og eru mótslok áætluð á tímabilinu 14:00-15:00. 

„Við gerum ráð fyrir verðlaunaafhendingu um kl. 15 og þar verða veitt verðlaun fyrir aldurshópa og fyrir hröðustu pörin í öllum flokkum. Það er góð aðstaða í stúkunni fyrir áhorfendur og við hvetjum sem flesta til að koma og upplifa skemmtilega keppni. ÍA verður með veitingasölu á mótinu og allir keppendur geta farið í Jaðarsbakkalaug án endurgjalds. 

Skráning í mótið: https://netskraning.is/ultraform/