Gleðjum saman er verkefni unnið í samstarfi með íþróttafólki þar sem gefnar eru áritaðar treyjur og upplifun til einstaklinga sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, glíma við fötlun/veikindi/sjúkdóma eða eru hversdagshetjur.

Skagapilturinn Hallur Guðjónsson fékk nýverið afhenta áritaða landsliðstreyju sem handknattleikskonan Elín Klara Þorkelsdóttir notaði þegar hún keppti fyrir Ísland gegn Svartfjallalandi.

Elín Klara og HSÍ buðu Halli og allri fjölskyldunni hans á leikinn.

Hallur er fæddur árið 2020 og verður því sex ára á þessu ári. Hann fæddist með Spina Bifida, Hydrocephalus og Chiari malformation II fæðingargalla sem hafa áhrif á taugakerfið og krefjast mikillar læknisumönnunar.

Nánar hér fyrir neðan.