
Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er markahæsti leikmaður franska liðsins Lille á þessari leiktíð.
Hákon skoraði fyrir Lille í 2-1 sigri liðsins gegn Rennes á útivelli. Með sigrinum er Lille í fimmta sæti deildarinnar og í baráttu um að komast í Meistaradeildarsæti.

Þetta var þriðji sigurleikur Lille í síðustu fjórum leikjum liðsins í deildinni. Lille er með 44 stig í fimmta sæti en liðið í fjórða sæti fer í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta tímabili.
Alls hefur Skagamaðurinn skorað 6 mörk á tímabilinu í frönsku úrvalsdeildinni. Hann er markahæsti leikmaður liðsins. Hákon er með alls 7 mörk á tímabilinu ef allar keppnir eru taldar með og alls hefur hann skorað 20 mörk fyrir félagið.
Í kvöld leikur Lille gegn enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Lille vann fyrri leikinn í Frakklandi 1-0.







