Karlalið ÍA í körfuknattleik er fallið úr efstu deild Íslandsmótsins, Bónusdeildinni. Fimm leikir fóru fram í næst síðustu umferðinni í kvöld þar sem að Þór frá Þorlákshöfn og Ármann unnu sína leiki. 

ÍA leikur gegn Stjörnunni á útivelli á morgun, föstudag, og er ljóst að ÍA nær ekki að fara upp fyrir Þór Þ. og Ármann með tveimur sigurleikjum í röð. ÍA og Ármann mætast á Akranesi í lokaumferðinni. 

ÍA er í neðsta sæti en gæti samt sem áður náð 12 stigum með tveimur sigurleikjum í röð. ÍA er hinsvegar með slakari árangur í innbyrðisviðureignum sínum gegn Þór Þ. og Ármanni.

ÍA er með 8 stig í 12. og neðsta sæti, en Þór Þ. er með 12 stig, og Ármann er með 12 stig.

Ármann er með betri innbyrðisárangur gegn Þór Þ. Ef liðin verða jöfn að stigum eftir lokaumferðin fellur Þór Þ. 

Eins og áður segir á ÍA eftir að leika tvo leiki, gegn Stjörnunni á útivelli 20. mars og á heimavelli gegn Ármenningum 26. mars.