Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona úr ÍA, varð í dag Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum. Þetta er í annað sinn sem Kristín fagnar þessum titli í -84 kg. flokki. 

Kristín, sem keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akraness, ÍA, starfar sem dýralæknir í Stafholtstungum í Borgarfirði.

Samtals lyfti Kristín 570,5 kg. og hafði hún töluverða yfirburði. Emilie Mouchet frá Frakklandi varð önnu með 555 kg. samtals og Agnes Rudin frá Svíþjóð varð þriðja með 540 kg. samtals. 

Til samanburðar lyfti Kristín 560 kg. samtals árið 2021 þegar hún varð Evrópumeistari og setti jafnframt Evrópumet í þessum þyngdarflokki. 

Keppt er í þremur greinum á EM í klassískum kraftlyftingum.

Í réttstöðulyftunni lyfti Kristín 230 kg, hún lyfti 215 kg. í hnébeygju og í bekkpressu lyfti hún 125,5 kg.

Í klassískum kraftlyfingu lyfta keppendur „á kjötinu“ eins og sagt er. Í klassískum kraftlyftingum eru keppendur ekki að nota vafninga, beygju- og réttstöðulyftu brækur og bekkpressusloppur sem eru úr lítt eftirgefanlegum efnum og gefa meiri styrk því það styður betur við.

Í klassískum kraftlyftingum er þessi búnaður ekki til staðar. Lyftingabelti, hnéhlífar og úlnliðsvafningar er leyfð til að veita stuðning og forðast meiðsli.

Kristín hefur þrívegis verið kjörin sem Íþróttamanneskja Akraness, 2020, 2021 og 2022.