Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) hafa hafið nýja söfnun til kaupa á fjórum Holter hjartasíritum sem mun bæta greiningu og þjónustu við sjúklinga um allt Vesturland og augnlampa (raufarlampa) sem mun verða staðsettur í Ólafsvík. Áætlað verð þessa tækja er rúmar þrjár milljónir króna.

Frá stofnun hafa Hollvinasamtökin afhent tæki og búnað að andvirði um 85 milljóna króna til HVE – allt byggt á stuðningi samfélagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem er í heild sinni hér fyrir neðan: 

„Samhliða söfnuninni boða samtökin til aðalfundar 26. mars kl. 16 í salarkynnum sjúkrahúss HVE á Akranesi, þar sem farið verður yfir starfsemi síðasta árs og kynnt nánar hvernig ný tæki munu nýtast í daglegu starfi HVE. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um heilbrigðismál á Vesturlandi.

Minni fyrirhöfn – meiri þægindi fyrir sjúklinga

Augnlampi (raufarlampi) er nákvæmt greiningartæki sem notað er til að skoða fremri hluta augans, meðal annars hornhimnu, lithimnu og augastein. Með slíkum búnaði er hægt að greina augnsjúkdóma og breytingar á auganu fyrr og með meiri nákvæmni, sem bætir þjónustu við sjúklinga á heilsugæslunni.. Þetta þýðir í raun að rannsóknir verða þægilegri fyrir sjúklinga, fljótlegri í úrvinnslu og nákvæmari fyrir lækna.

Samfélagið stendur með HVE

Frá stofnun hafa Hollvinasamtökin afhent tæki og búnað að andvirði um 85 milljóna króna til HVE – allt byggt á stuðningi samfélagsins.

„Það er einstakt að upplifa þann samhug sem ríkir á Vesturlandi þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Við fengum frábærar viðtökur einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka við söfnun á Bipap öndunaraðstoðartæki í lok síðasta árs. Með sameiginlegu átaki getum við áfram tryggt að aðbúnaður og tækjabúnaður sé í fremstu röð,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, formaður Hollvinasamtakanna.

 

Aðalfundur – opinn öllum áhugasömum

Á aðalfundinum verður farið yfir starfsemi samtakanna, samþykktir ársreikningar og kynnt ný söfnunarverkefni.

Sérstök áhersla verður lögð á að útskýra hvernig nýju tækin munu nýtast sjúklingum og starfsfólki HVE.

Öll sem láta sig heilbrigðismál varða eru hvött til að mæta og taka þátt.
Hollvinasamtökin hvetja fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að taka þátt í verkefninu.

Hægt er að gerast félagi og greiða hóflegt árgjald kr. 3000.

Hollvinasamtökin eru skráð á almannaheillaskrá, þ.a. framlög einstaklnga til samtakanna á bilinu kr. 10.000 til 350.000 á almanaksári koma til lækkunar á útsvars- og tekjuskattstofni.

Hjá hjónum og sambúðarfólki allt að kr. 700.000 og allt að 1,5% af rekstartekjum fyrirtækja.

Framlög má leggja inn á reikning Hollvinasamtaka HVE:
0326-22-000834 – kt. 510214-0560

Einnig er hægt að fylgjast með starfi samtakanna og skrá sig sem félaga á Facebook-síðunni Vesturlandsvaktin.