Hrafn Ágúst Björnsson, öryggisráðgjafi, skipar efsta sætið á framboðslista Miðflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi sem fram fara í maí á þessu ári. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram á Akranesi í bæjarstjórnarkosningum. Alls eru fimm flokkar sem bjóða sig fram í komandi kosningum.

Í tilkynningu frá Miðflokknum kemur fram að helstu áhersluatriði flokksins séu: Ábyrg fjármál og stjórnsýsla, leikskóla og -grunnskólamál, samgöngumál, íþróttamál og atvinnuuppbygging.

Listinn er þannig skipaður: 

1. Hrafn Ágúst Björnsson – Öryggisráðgjafi
2. Guðríður Þorbjörnsdóttir – Stjórnsýslufræðingur
3. Ólafur Rúnar Sigurðsson – Sölufulltrúi og innkaup
4. Hörður Svavarsson – Rafvirkjameistari
5. Aníta Hauksdóttir – Framleiðsluplönun Norðurál
6. Finney Aníta Thelmudóttir – Lögfræðingur
7. Tómas Sjöberg Kjartansson – Eigandi og rekstrarstjóri Kölska
8. Ellý Sandra Ingvarsdóttir – Sölumaður hjá Norðanfisk
9.Gerald Brimir Einarsson – Stöðvarstjóri og þjálfari
10. Hermann Unnarsson – Söluráðgjafi
11. Ágúst Snær Þorsteinsson – Pípari
12. Valdimar Þorvaldsson – Bílstjóri
13. Steindór Mar Gunnarsson – Námsmaður og starfsmaður í Elkem
14. Guðmundur Jóhann Steindórsson – Verkefnastjóri
15. Helga Kristín Haug Jónsdóttir – Vélsmiður
16. Emin Kadri Eminsson – Athafnamaður
17. Jón Jónsson – Verkamaður
18. Óli Jón Gunnarsson – Fv. framkvæmdastjóri.