Nýverið voru niðurstöður könnunar um þátttöku nemenda í 10. bekk á Akranesi kynntar. Spurt var um þátttöku þeirra í skipulögðu frístundastarfi en um er að ræða nemendur sem eru að ljúka grunnskólagöngu vorið 2026.

Niðurstöðurnar sýna að um 70% nemenda taka þátt í slíku starfi, mæta reglulega í Arnardal, æfa íþróttir eða stunda tónlistarnám.

Í fundargerð skóla – og frístundaráðs kemur fram að brottfall unglinga úr skipulögðu frístundastarfi verði greint nánar í samstarfi við svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi og ÍA.