Kvennalið ÍA er í 6. sæti Lengjudeildar Íslandsmótsins í knattspyrnu en liðið hefur leikið fimm leiki í næst efstu deild.
ÍA er með 6 stig, 2 sigurleikir og 3 tapleikir.
Alexa Maletis er markahæsti leikmaður liðsins með 5 mörk í 4 leikjum en hún er í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.

Mynd: 📸: Jón Gautur foto
Úrslit leikja liðsins eru eftirfarandi:
30. maí: Keflavík – ÍA 2:1.
25. maí: ÍA – Tindastóll 5:0.
20. maí: KR – ÍA 3:2.
9. maí: ÍA – FHL 1:0.
2. maí: HK – ÍA 3:1.
Næstu leikir ÍA er gegn Völsungi á útivelli á Húsavík laugardaginn 6. júní og Selfoss kemur heimsókn á Akranes fimmtudaginn 11. júní.








