Káramenn eru í toppbaráttunni í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu – þriðju efstu deild. 

Kári sigraði lið Dalvíkur/Reynis örugglega 6:0 í fimmtu umferð mótsins sem fram fór s.l. sunnudag. Með sigrinum er Kári í öðru sæti deildarinnar með 10 stig, þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap. 

Úrslit leikja Kára það sem ef er Íslandsmótinu:

31. maí: Kári – Dalvík/Reynir 6:0.

23. maí: Kormákur/Hvöt – Kári 4:1.

15. maí: Kári – Hvíti Riddarinn 0:0.

9. maí: KFA – Kári 2:4. 

2. maí: Kári – FFG 5:1. 

Næstu leikir Kára eru sannkallaðir stórleikir. Kári leikur gegn Víkingi Ólafsvík á útivelli laugardaginn 6. júní, og Selfoss kemur í heimsókn á Akranes þann 10. júní. Kári sækir síðan lið Fjölnis heim þann 15. júní, en Selfoss og Fjölnir féllu úr Lengjudeildinni, næst efstu deild, s.l. haust – en liðin eru í þriðja og fjórða sæti deildarinnar. Haukar eru á toppi deildarinnar með 12 stig.