Garnikó opnar á næstu dögum nýja garn- og prjónaverslun að Kirkjubraut 10 í hjarta Akraness. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Að baki Garnikó stendur Skagakonan Rakel Rósa Þorsteinsdóttir. Hún segir viðtökurnar við Garnikó hafa farið langt fram úr þeim væntingum sem hafði þegar hún opnaði netverslunin fyrir tæpu ári síðan í október 2025.

Fyrirtækið hóf starfsemi sem netverslun með hágæða garn og prjónavörur, en fljótlega eftir opnun var lítil verslun opnuð í bílskúrnum heima hjá þeim hjónum Rakeli og Jónasi Kára Eiríkssyni hér á Akranesi. Sú aðstaða var fljót að verða of lítil og nú tekur næsti kafli við með opnun verslunar í hjarta bæjarins.

„Viðtökurnar hafa eiginlega farið fram úr öllu sem ég þorði að vona. Bílskúrsbúðin var hugsuð sem lítið aukaskref við netverslunina en hún var mjög fljót að springa utan af okkur. Það varð því ljóst að við þyrftum að finna Garnikó stærra heimili,“ segir Rakel.

„Miðbærinn á mikið inni“

Húsnæðið við Kirkjubraut 10 varð fyrir valinu og segir Rakel það hafa verið meðvitaða ákvörðun að horfa til miðbæjar Akraness eftir að hafa skoðað möguleika á verslunarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

„Mér finnst miðbærinn okkar eiga ótrúlega mikið inni. Við höfum eytt miklum tíma hér síðustu vikurnar og það hefur komið mér á óvart hvað það er mikið af fólki á ferðinni. Bæði Skagamönnum og fólki annars staðar frá sem kemur hingað og vill upplifa Skagamenninguna.“

Hún segir tækifærin til að byggja upp meira líf og þjónustu á svæðinu fjölmörg.

„Það hefur verið mikið rætt um að lífið í miðbænum sé að dvína, en ég held að við þurfum líka að hafa trú á honum og þora að skapa ástæður fyrir fólk til að koma hingað. Það er augljós áhugi á meira lífi, menningu, verslun og upplifun í miðbænum. Mig langar að nýta tækifærið og hvetja fleiri til að horfa á þau tækifæri sem eru hér.“

Garnikó fær stærra heimili

Í nýju versluninni verður boðið upp á úrval af hágæða garni, prjónum og fylgihlutum frá alþjóðlegum vörumerkjum á borð við Lana Grossa, Woolfolk, Biches & Bûches og LYKKE sem hafa þegar fengið frábærar móttökur hér á landi.

Frá upphafi hefur áhersla Garnikó verið á vandaðar vörur, persónulega þjónustu og að skapa nútímalega og aðgengilega upplifun í kringum prjón og handverk.

Rakel segist spennt fyrir því að geta nú tekið betur á móti viðskiptavinum, sýnt úrvalið og haldið áfram að byggja upp samfélagið sem hefur myndast í kringum Garnikó.

„Þetta er stórt skref fyrir okkur en um leið eðlilegt næsta skref. Ég hlakka mest til að sjá búðina fyllast af fólki og skapandi hugmyndum,“ segir Rakel.

Opnunartímar Garnikó að Kirkjubraut 10:

Þriðjudagar: 13–17
Miðvikudagar: 13–17
Fimmtudagar: 13–19
Föstudagar: 13–17
Laugardagar: 11–15