
Karlalið ÍA í körfuknattleik fær verðugt verkefni í kvöld þegar lið Álftaness mætir í heimsókn í viðureign liðanna í 32 – liða úrslitum VÍS bikarkeppni KKÍ.

Leikurinn fer fram í AvAir höllinni við Jaðarsbakka og hefst leikurinn kl. 19:15 mánudaginn 19. október 2026.
Álftanes er í efstu deild, Bónusdeildinni, og er liðinu spáð Íslandsmeistaratitlinum.
ÍA hefur farið vel af stað í næst efstu deild Íslandsmótsins, 1. deild, og hefur liðið unnið alla þrjá leiki sína til þessa í deildinni með töluverðum yfirburðum.
Alls eru 29 lið sem leika í 32 liða úrslitum VÍS bikarkeppninnar að þessu sinni.
Snæfell, Keflavík og Ármann sitja hjá og eru komin í 16-liða úrslit.











