Skagamenn héldu sigurgöngu sinni áfram í 1. deild Íslandsmótsins í körfuknattleik karla í kvöld með 104:94 sigri gegn Þór frá Þorlákshöfn. Leikurinn fór fram í Þorlákshöfn en bæði liðin voru taplaus eftir fyrstu þrjár umferðirnar. 

Með sigrinum er ÍA áfram á toppi deildarinnar ásamt liði Hauka úr Hafnarfirði en bæði liðin hafa unnið alla fjóra leiki sína fram til þessa. 

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir ÍA – sérstaklega í ljósi þess að liðin eiga án efa eftir að berjast um efsta sæti deildarinnar ásamt liði Hauka. Það lið sem er efst eftir að deildarkeppninni lýkur tryggir sér sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili en liðin þar fyrir neðan leika í úrslitakeppni um eitt laust sæti til viðbótar í efstu deild. 

Bandaríkjamaðurinn Marcus Tsohonis sýndi hvað í honum býr í þessum leik – en hann skoraði 18 stig og tók 14 fráköst. 

Gojko Sudzum var stigahæstur með 23 stig, 4 fráköst og 6 stoðsendingar. 

Leikstjórnandinn efnilegi Sölvi Ólason var enn og aftur í stóru hlutverki hjá ÍA – og var stigahæstur með 25 stig, 4 fráköst og 8 stoðsendingar. 

Framherjinn Þórarinn Gunnar Óskarsson, sem kom til ÍA í haust líkt og Sölvi, átti sinn besta leik til þessa fyrir ÍA. Hann skoraði 18 stig, tók 7 fráköst og skotnýting hans fer í sögubækurnar – 100% nýting. 

Aðstoðarþjálfarinn Igor Maric lék í 30 mínútur sem er það mesta sem hann hefur leikið á þessu tímabili – og hinn þaulreynda skytta skoraði 10 stig og tók 7 fráköst. 

Næsti leikur ÍA er á heimavelli þann 27. okt. n.k. gegn liði KFG sem er í fjórða sæti deildarinnar. KFG er í samstarfi við Stjörnuna úr Garðabæ og er liðið vel mannað leikmönnum sem eiga flestir rætur að rekja í Stjörnuna.