
Elkem og Landsvirkjun hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup fyrir starfsemi Elkem á Grundartanga. Fyrri samningur fyrirtækjanna var til 2029 en sá nýi gildir til 2039.
Samningsmagn er óbreytt eða 127 MW. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, segir í færslu á fésbókinni að erfitt sé að lýsa því hversu ánægjulegt það sé að hafa náð þessum áfanga. Samningurinn er lokaverkefni Álfheiðar í hlutverki leiðtoga fyrirtækisins en hún hefur verið forstjóri Elkem frá árinu 2020 – en hún mun hefja störf hjá sem aðstoðarforstjóri Travel Connect sem er eitt stærsta og öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi og í Norður-Evrópu.
Hér fyrir neðan má sjá færslu Álfheiðar.
„Það er erfitt að lýsa því hversu ánægjulegt það er að sjá þennan mikilvæga áfanga nást. Með nýjum raforkusamningi til ársins 2039 er kominn traustur grunnur að framtíð Elkem á Grundartanga, grunnur sem skapar tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar, þróunar og verðmætasköpunar. Þessi samningur er mér sérstaklega hjartfólginn enda fékk ég að leiða verkefnið fyrir hönd Elkem ásamt frábæru fólki. Það er líka á vissan hátt táknrænt að þetta hafi verið mitt síðasta verkefni hjá félaginu.
Að fá að ljúka þeim kafla með því að leggja grunn að framtíðinni er ótrúlega dýrmætt. Að baki liggur mikil vinna, ótal samtöl, þrautseigja og umfram allt trú á að hægt væri að finna farsæla lausn. Ég er innilega þakklát öllum sem komu að verkefninu, lögðu sitt af mörkum og höfðu trú á því, líka þegar á móti blés.
Og það sem gerir þennan áfanga enn ánægjulegri er að vita hvaða fólk tekur nú við keflinu. Ég hef óbilandi trú á þessum frábæra hópi og getu hans til að nýta þau tækifæri sem fram undan eru og leiða Elkem inn í framtíðina.
Innilega til hamingju, kæru vinir hjá Elkem og Landsvirkjun! Þetta er stór dagur og ég gæti ekki verið stoltari af því sem við höfum áorkað saman.





