„Þetta hefði getað farið töluvert verr,“ segir Friðrik Helgi Friðriksson í samtali við mbl.is en hann var hársbreidd frá því að fá stjórnlausa bifreið framan á sig á Vesturlandsveginum um miðjan dag í gær.
Friðrik Helgi var að aka upp úr Kollafirðinum í átt til Reykjavíkur þegar atvikið átti sér stað. Bílstjórinn sem missti stjórn á bifreiðinni sakaði ekki en bifreiðin hafnaði þversum á veginum út við vegkantinn.
Friðrik segir brýnt að ráðist verði í samgöngubætur á Vesturlandsvegi sem allra fyrst til að draga úr slysahættu á veginum.