Karlalið ÍA í körfuknattleik leikur gegn KV á heimavelli á miðvikudaginn í næst efstu deild Íslandsmótsins. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu – og hefst hann kl. 19:15. 

Skagamenn eru í góðri stöðu í baráttunni um sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili. Liðið hefur nú unnið átta leiki í röð en ÍA lagði Snæfell í Stykkishólmi s.l. föstudag í hörkuleik, 87-85. 

Tölfræði leiksins er hér fyrir neðan. 

Skagamenn og Hamar úr Hveragerði eru í efsta sæti deildarinnar með 26 stig að loknum 16 umferðum. Efsta liðið að lokinni deildarkeppninni kemst beint upp í úrvalsdeildina, Bónusdeildina.

Liðin í sætum 2-9 keppa í úrslitakeppni um eitt laust sæti til viðbótar í efsta deild. 

Skagamenn eiga eftir að leika sex leiki í deildinni og Hamarsmenn koma í heimsókn á Skagann 27. febrúar. 

Leikir ÍA sem eru framundan. 

12. febrúar: ÍA – KV – Vesturgata kl. 19:15. 
21. febrúar:  Breiðablik –  ÍA – Smárinn 19:15. 
27. febrúar: ÍA – Hamar – Vesturgata 19:15. 
7. mars: Fjölnir – ÍA – Dalhús 19:15. 
14. mars; ÍA – Ármann – Vesturgata 19:15.
17. mars: Selfoss – ÍA – Vallaskóli 19:15.