Kalman – tónlistarfélag Akraness býður til stórtónleika á Vökudögum nk. fimmtudag, 23. október kl. 20. Þar kemur fram okkar ástsæli stórsöngvari Kristinn Sigmundsson ásamt stórtenórnum Kolbeini Jóni Ketilssyni og Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Á efnisskránni eru íslensk og erlend sönglög úr ýmsum áttum eftir Sigvalda Kaldalóns, Eyþór Stefánsson, Franz Schubert, Hugo Wolf, Fransexco Paolo Tosti, Richard Strauss o.fl.

Þríeykið hélt tónleika í Salnum í Kópavogi 26. september sl. við frábærar móttökur og ákafan fögnuð viðstaddra. Eftir að hafa einnig haldið tónleika í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík og Miðgarði í Skagafirði ljúka þau nú hringnum á Akranesi þar sem flutt verður sama dagskrá og í Salnum.

 

  • Kristinn Sigmundsson hefur haft söng að aðalstarfi síðan 1984. Fyrst hér heima, en frá árinu 1989 hefur hann að mestu starfað erlendis. Hann hefur komið fram í flestum stærstu óperuhúsum heims og hefur sungið á annað hundrað óperuhlutverka, þar á meðal flest stærstu bassahlutverk Wagners. Kristinn hefur einnig verið einn fremsti íslenski túlkandi ljóðatónlistar á Íslandi auk þess að helga sig sérstaklega íslenska sönglaginu.
  • Matthildur Anna Gísladóttir lauk bakkalárnámi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Þaðan lá leiðin í Royal Academy of Music í London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014 lauk Matthildur meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland (RCS). Þar var hún á fullum skólastyrk og hlaut James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Matthildur hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis sem erlendis og komið að óperuuppsetningum, m.a. hjá Kammeróperunni, Óperudögum, Íslensku óperunni, British Youth Opera, RCS, Scottish Opera og Lyric Opera Studio í Weimar. Matthildur starfar nú við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
  • Kolbeinn Ketilsson hefur sungið mörg veigamestu tenórhlutverk óperubókmenntanna, m.a. titilhlutverkin í Ævintýrum Hoffmanns, Don Carlo, Parsifal, Tristan, Rienzi, Tannhäuser og Lohengrin. Hann hefur starfað með mörgum þekktustu hljómsveitarstjórum heims, m.a. Antonio Pappano, Lorin Maazel, Kurt Masur, Kent Nagano og Zubin Metha. Auk þess að syngja í óperum kemur Kolbeinn einnig reglulega fram á tónleikum sem ljóðasöngvari og einsöngvari í hljómsveitarverkum.
  • Aðgangseyrir er kr. 4.500
  • Miðasala er við innganginn.
  • Boðið verður upp á kaffi og konfekt í hléi.
  • Fjölmennum kæru Skagamenn og eflum menningarlíf bæjarins.