Íþróttabandalag Akraness hefur lagt fram beiðni þess efnis að félagsaðstaða við Akraneshöllina verði bætt. Hugmyndin gengur út á að breyta rými sem í dag kallast Akraborg í varanlega félagsaðstöðu – með heimild til veitingasölu. 

Um er að ræða óupphitaða rými sem var upphaflega hannað sem geymsla en hefur á undanförnum misserum fyrir veitingasölu á leikjum í knattspyrnu – og körfuknattleik.  

Í fundargerð umhverfis – og skipulagsráðs kemur fram að beiðnin feli jafnframt í sér að opnuð verði tenging milli rýmisins og Akraneshallar til að bæta aðgengi og flæði gesta.

Markmið breytingarinnar er að bæta aðstöðu fyrir gesti og iðkendur í íþróttamannvirkjum á Jaðarsbökkum, meðal annars með aukinni þjónustu og bættri setuaðstöðu í tengslum við íþróttaviðburði.

Gert er ráð fyrir að Akraneskaupstaður hafi umsjón með hönnun og nauðsynlegum formlegum breytingum á húsnæðinu, en aðildarfélög ÍA annist framkvæmd og kostnað að þeim loknum. Fyrirhugað er að rýmið verði hluti af rekstri KFÍA og nýtist öllum félögum á svæðinu. 

Tekið var jákvætt í erindið. Skipulags- og umhverfisráð hefur falið sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram og leggja kostnaðarmat fyrir næsta fund ráðsins.