Það var mikið líf í Bíóhöllinni á föstudagskvöldið þegar skagafrettir.is litu við á generalprufu á leikritinu um Ronju Ræningjadóttur. Það er leiklistaklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Akraness sem stendur að sýningunni. Alls eru um 50 manns sem koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Aldís Eir Valgeirsdóttir fer með aðalhlutverkið og hún dregur ekkert af sér í túlkun sinni á þessari skemmtilegu persónu. Ronja fer fyrir ræningjahóp föður sína og berst við álfa, huldufólk og kynjaverur.
„Krakkarnir hafa staðið sig vel og ég er ótrúlega stoltur af þeim. Það gefur mér mikið að vinna með slíkum hópi, sendir mig aftur í tímann, og stundum langar mig að dvelja þar aðeins lengur. Ég get lofað að hér sé um að ræða frábæra sýningu fyrir alla fjölskylduna. Það hefur gengið vel að undirbúa þetta verkefni. Eins og alltaf voru síðustu dagarnir efiðir þar sem að sýningin er tæknilega frekar flókinn. En þegar maður hefur Ingþór Bergmann í Omnis í lífi sínu þá er allt mögulegt – og þetta gekk allt saman upp að lokum,“ segir Hallgrímur Ólafsson leikstjóri í samtali við skagafrettir.is.
Halli Melló segir að gestir sýningarinnar geti búist við grádvergum, skógarnornum, rassálfum og alls kyns kynjaverum. „Aðalpersónurnar Birkir og Ronja lenda í hverju ævintýrinu á fætur öðru þessari frægu sögu eftir Astrid Lindgren. Annina Pasoen, Bente Kongsbök og Ásdís Skúladóttir gerður leikgerðina en þýðingin er eftir Þorleif Hauksson og söngtextar eru eftir Böðvar Guðmundsson
Leikstjórn: Hallgrímur Ólafsson
Leikmynd og búningar: Sara Hjördís Blöndal
Tónlistarstjórn: Birgir Þórisson
Lýsing: Ingþór Bergmann Þórhallsson
Myndasyrpa frá föstudagskvöldinu: