
Sturlaugur Haraldsson er nýr bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu. Hann tekur við sem bæjarstjóri 19. ágúst.
Sturlaugur er fæddur á Akranesi og var í lykilhlutverki í sigursælu knattspyrnuliði Skagamanna á árunum 1992-2000 – og er einn leikjahæsti leikmaður ÍA.

Á undanförnum tveimur áratugum hefur Sturlaugur stjórnað sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi og erlendis. Hann er með BS gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Manchester University.
Sturlaugur er kvæntur Þórunni Önnu Baldursdóttur skurðhjúkrunarfræðingi og saman eiga þau fimm börn.
„Það kom nokkuð óvænt upp þegar bæjarstjórn bauð mér starf bæjarstjóra. Eftir góða umhugsun ákvað ég að stökkva til og þiggja boðið,“ segir Sturlaugur.
„Mér þykir gríðarlega vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi mitt og ég vona sannarlega að ég geti gert eitthvað gagn. Ég sé mikil framtíðartækifæri í þessu frábæra bæjarfélagi og eftir hreinskiptið samtal við kjörna fulltrúa finn ég að við erum með sameiginlega sýn á hvernig best verður að koma hlutunum áfram.“
Sturlaugur segist ákveðinn í að verða bæjarstjóri allra Skagamanna.
„Þar skiptir ekki máli hvort fólk sé í meirihluta eða minnihluta. Hjá bænum starfar öflugt lið og ef við spilum vel saman þá munum við ná góðum árangri. Ég hlakka mjög til þess að taka til starfa,“ segir Sturlaugur.









