
Bikardraumur ÍA er á enda í körfubolta karla þetta árið eftir 95:73 tap gegn liði Álftaness í gær í AvAir höllinn á Jaðarsbakka á Akranesi.
Skagamenn, sem leika í næst efstu deild, sýndi góða takta í fyrsta leikhluta gegn liðinu sem spáð er Íslandsmeistaratitlinum í Bónusdeild Íslandsmótsins, efstu deild.

Staðan var 21:18 eftir fyrsta leikhluta en 30:18 áhlaup gestana í öðrum leikhluta reyndist dýrt þegar uppi var staðið.
Gojko Sudzum var atkvæðamestur í liði ÍA með 19 stig og 8 fráköst á 30 mínútum en hann skoraði aðeins 2 stig í síðari hálfleik.
Aðstoðarþjálfari ÍA, Igor Maric, skoraði 12 stig, og hefði mátt fá fleiri sendingar frá samherjum sínum til þess að skjóta af þriggja stiga færinu, Hann skoraði úr 2 af 3 þriggja stiga skotum sínum í leiknum en Maric er án vafa ein besta skytta sem hefur leikið hér á landi.
Leikstjórnandinn Sölvi Ólason var með 7 stig og 9 stoðsendingar en hann átti í talsverðum vandræðum gegn sterkri vörn Álftaness og tapaði hann alls boltanum 7 sinnum.
Lucien Thomas Christofis átti fínan leik með 12 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar.
Bandaríkjamaðurinn Marcus Tsohonis á enn eftir að sýna hvað í honum býr – en hann skoraði 12 stig, tók 4 fráköst og gaf 1 stoðsendingu. Tsohoni meiddist illa á undirbúningstímabilinu og miðað við þá ákefð sem hann leggur í leik sinn þá er hann alls ekki klár í slaginn.
Sigurður Pétursson var öflugur í liði Álftaness með 26 stig, 7 fráköst og var frábær í vörninni. Laksa Martins var einnig góður með 18 stig og 4 fráköst.





