Karlalið ÍA í knattspyrnu heldur áfram að gera góða hluti í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins.
Í gær landaði ÍA 4:2 sigri á útivelli gegn Fram.

Fram komst yfir snemma leiks en Framarinn Freyr Sigurðsson fékk rautt spjald á 12. mínútu.
Varnarmaðurinn í liði ÍA, Baldvin Þór Berndsen, skoraði tvívegis áður en Kristófer Konráðsson jafnaði metin fyrir Fram með sínu öðru marki í leiknum.
Rafael Máni Þorsteinsson og Viktor Jónsson bættu við mörkum fyrir ÍA í uppbótartíma.
Mörkin og rauða spjaldið má sjá hér fyrir neðan frá vef Vísis.
Skagamenn eru í 4. sæti deildarinnar með 37 þegar ein umferð er eftir. ÍA tekur á móti liði Keflavíkur í lokaumferðinn á Akranesvelli laugardaginn 24. október kl. 14:00. Norski varnarmaðurinn Erik Tobias Sandberg verður í leikbanni í þeim leik – og Svíinn Johannes Vall mun leika sinn síðasta leik fyrir ÍA en hann hefur leikið með ÍA frá árinu 2022.
Viktor Jónsson og Markús Páll Ellertsson eru með 14 mörk hvor um sig og deila þeir öðru sætinu á markakóngslistanum á þessu tímabili.
KR-ingurinn Aron Sigurðarson er markahæstur með 21 mark.






