Tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGA fékk í dag menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2026 fyrir framúrskarandi framlag til menningarlífs bæjarins.

Þetta kemur í tilkynningu frá Akraneskaupstað. 

Þar kemur eftirfarandi m.a. fram: 

„Frá því hátíðin var fyrst haldin árið 2019 hefur HEIMA-SKAGI fest sig í sessi sem einn af eftirtektarverðustu tónlistarviðburðum bæjarins. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt og orðið ómissandi hluti af Vökudögum, þar sem hún laðar að sér tónlistaráhugafólk nær og fjær og auðgar menningar- og mannlíf bæjarins.

Á bak við hátíðina stendur Ólafur Páll Gunnarsson, sem hefur af eldmóði, metnaði og ástríðu fyrir tónlist leitt verkefnið frá upphafi. Með skýrri sýn og óþreytandi vinnu hefur honum tekist að skapa vettvang þar sem fjölbreytt tónlist fær að njóta sín og þar sem áhorfendur upplifa tónlist í einstakri nálægð við flytjendur. Undir hans stjórn hefur HEIMA-SKAGI þróast í rótgróinn og virtan viðburð sem hefur styrkt menningarlíf á Akranesi ár eftir ár.“

Nánar á akranes,is.

Eftirtaldir hafa fengið Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar: 

2025: Ægisbraut Records
2024: ÍATV
2023: Ice Docs
2022: Kellingar
2121: Flosi Einarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Einar Viðarsson
2020: Árbók Akurnesinga
2019: Útvarp Akranes
2018 Ásmundur Ólafsson
2017: Guðbjörg Árnadóttir
2016: Club 71
2015: Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi
2014: Heiðrún Hámundardóttir tónmenntakennari
2013: Guðmundur Sigurðsson hagleiks- og hugsjónamaður
2012: Vinir hallarinnar fyrir menningar- og listalíf
2011: Lárus Sighvatsson fyrir starf sitt sem skólastjóri Tónlistarskólans
2010: Flosi Einarsson tónlistarmaður
2009: Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness
2008: Bókaútgáfan Uppheimar
2007: Haraldur Sturlaugsson og Ingibjörg Pálmadóttir vegna Haraldarhúss