Skagamaðurinn Guðjón Sigurðsson náði frábærum árangri í Bakgarðshlaupinu sem lauk í dag. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á viðtal við Guðjón þegar hann lauk keppni fyrr í dag.  

Guðjón hljóp 455 kílómetra eða 68 hringi – sem er besti árangur sem hann hefur náð. Guðjón bætti fyrri árangur sinn um 20 hringi eða um 134 km. 

Til samanburðar þá er vegalengdin sem Guðjón hljóp nálægt vegalengdinni frá Akranesi á Höfn í Hornafirði eða á Grímsstaði á Fjöllum. 

Gunnar Lárus Karlsson kláraði 69 hringi og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn – og keppnisrétt á HM einstaklinga. 

Bakgarðshlaupið var hluti af Heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum 2026. Alls tóku 60 þjóðir þátt en árið 2022 tóku 38 þjóðir þátt. Hver þjóð keppti á sínum heimavelli og hófst keppnin á sama tíma á öllum 60 stöðunum.

Keppnin stóð yfir í tæpa þrjá sólarhringa. Keppendur fá 60 mínútur til þess að ljúka við 6,7 km. hring. Keppendur eru ræstir út á heila tímanum og ef þeir ná ekki að ljúka hringnum á 60 mín. eru þeir úr leik. Það er því keppikefli keppenda að ljúka hringnum á sem stystum tíma til þess að fá hvíld fyrir næstu törn. 

Keppnisstaðurinn á Íslandi var í Elliðaárdal og hófst hringurinn við Elliðaárstöð Orkuveitu Reykjavíkur.