Lárus Orri Sigurðsson er hættur sem þjálfari karlaliðs ÍA knattspyrnu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem var birt eftir að ÍA gerði 4:4 jafntefli gegn Keflavík í lokaumferð Bestu deildar karla 2026. 

ÍA endaði í 4. sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2007 þegar liðið endaði í 3. sæti. 

Lárus Orri tók við liðinu um mitt síðasta ár og náði liðið að halda sæti sínu í deild þeirra bestu eftir mikla fallbaráttu á lokakafla Íslandsmótsins. Hann gerði tveggja ára samning við ÍA um þjálfun liðsins í lok október í fyrra og átti samningurinn að renna út í lok keppnistímabilsins 2027. 

Lárus Orri ólst upp á Akranesi og lék með yngri flokkum ÍA við góðan orðstír allt þar til hann flutti til Akureyrar á unglingsaldri. Þar lék hann með meistaraflokki Þórs í nokkur ár.

Hann átti magnaðan atvinnumannaferil í Englandi sem spannaði 10 ár þar sem hann lék með Stoke og WBA, bæði í Championship deildinni og Ensku úrvalsdeildinni.

Hann á að baki 42 A landsleiki og spilaði auk þess með öllum yngri landsliðum Íslands.

Lárus Orri á farsælan 10 ára feril að baki í þjálfun meistaraflokka Þórs á Akureyri og KF.

Tilkynning ÍA er hér fyrir neðan: