Karlalið ÍA í knattspyrnu er úr leik í Mjólkurbikarkeppni KSÍ 2024. ÍA mætti liði Keflavíkur á útivelli í kvöld en Keflavík leikur í næst efstu deild- en ÍA er í Bestu deildinni. Hinrik Harðarson kom ÍA yfir á 4. mínútu og Skagamenn byrjuðu vel. Varnarmaður...
Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2023 – A hluti var samþykktur með 9 atkvæðum gegn engu á fundi bæjarstjórnar Akraness nýverið. Í bókun meirihluta bæjarstjórnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, kemur fram að niðurstaðan endurspegli traustan rekstur sveitarfélagsins. Jákvæð niðurstaða á samstæðureikningi bæjarins var um 319 m.kr sem...
Þrjú tilboð bárust í lóðarfrágang í kringum íþróttahúsið á Jaðarsbökkum og tengingar yfir Innnesveg – en Akraneskaupstaður bauð verkið nýverið út. Tilboðin voru opnuð í lok apríl en kostnaðaráætlun var rétt tæplega 270 milljónir kr. Fagurverk ehf bauð lægst í verkefnið eða rétt tæplega 241 milljónir kr....
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur hefur óskað eftir því að láta störfum sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla og mun hann taka við þjálfun liðs AB í Danmörku. Jóhannes hafði nýverið framlengt samningi sínum við KSÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KSÍ. Þar segir: Jóhannes Karl lætur...
Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson skrifaði nýverið undir nýjan ráðningarsamning við Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ.Jóhannes Karl var ráðinn í starf aðstoðarþjálfara A-landsliðs karla í janúar árið 2022. KSÍ samdi á ný við Jóhannes Karl og er samningurinn til loka nóvember 2025.Samningurinn framlengist sjálfkrafa ef Ísland kemst í...
Alls tóku 9 keppendur frá Sundfélagi Akraness þátt á Opna Íslandsmeistaramótinu í garpasundi sem fram fór dagana 4.-5. maí í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Keppendur voru alls 155 og komu þeir frá 12 félögum. Í Garpasundi eru keppendur 25 ára og eldri. Sundfólkið þaulreynda úr ÍA...
Leiklistarklúbburinn Melló, sem er skipaður nemendum úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, sló heldur betur í gegn með uppsetningunni á Söngleiknum Grease. Frumsýningin var 12. apríl og var uppselt á alls 11 sýningar – og óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið stórkostlegar. Einar Viðarsson var...
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson varð í dag danskur bikarmeistari í knattspyrnu með Silkeborg.Stefán Teitur, sem er fæddur árið 1998, var í stóru hlutverki að venju í liði Silkeborg – sem sigraði 1-0 gegn AGF. Stefán var kjörinn maður leiksins og lét hann mikið að sér...
Golfklúbburinn Leynir hefur óskað eftir samningi við Akraneskaupstað um landsvæði til stækkunar á Garðavelli á Akranesi úr 18 holum í 27 holur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá klúbbnum. Stjórn – og framkvæmdastjóri Leynis áttu fund með bæjaryfirvöldum vegna málsins s.l. föstudag.Bæjarráð hefur falið skipulags-...
Akranesmeistaramótið í sundi fór nýverið fram í Jaðarsbakkalaug – og voru aðstæður mjög góðar og veðrið gott.Alls tóku 25 keppendur þátt og yngsta sundfólkið var 11 ára. Akranesmeistar 2024 eru:11-13 ára: Karen Anna Orlita. Kristófer Guðjónsson.14-15 ára:Viktoria Emilia Orlita.Kajus Jatautas.16 ára og eldri: Sunna Arnfinnsdóttir.Guðbjarni Sigþórsson.