Llorens hárstofa opnaði í byrjun þessa árs en eigandi stofunnar er Carmen Llorens hársnyrtir. Hárstofan byggir á þeim grunni sem lagður var á Rakarastofu Gísla – en Carmen og Gísli störfuðu saman á rakarastofunni um margra ára skeið. Gísli hefur nú sagt skilið við hársnyrtifagið eftir rúmlega...
Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2023. Kjörinu var lýst í frístundamiðstöðinni Garðavöllum í beinni útsendingu á ÍATV.Þetta er í fyrsta sinn sem Einar hlýtur þessa nafnbót. Hann er 22. sundmaðurinn úr röðum ÍA sem kjörinn er Íþróttamaður ársins....
Nýárstónleikar Kórs Akraneskirkju sem fram fóru í gærkvöld verða lengi í minnum hafðir. Tæplega 300 gestir troðfylltu Bíóhöllina – sem er aðsóknarmet. Í myndbandinu hér fyrir neðan er stutt myndband frá tónleikunum sem lýsir ágætlega stemningunni sem var í Bíóhöllinni. Síðkjólar og dans voru einkennismerki tónleikanna...
Skagamaðurinn Gauti Jóhannesson var í áhugaverðu viðtali á Bylgjunni nýverið. Hann rannsakar nýja meðferð við gláku.Gláka einn af algengustu augnsjúkdómunum og getur í verstu tilfellunum valdið blindu. Gauti er dósent í augnsjúkdómafræði við Læknadeild Háskóla Íslands en starfar einnig sem dósent við Háskólann í Umeå og yfirlæknir...
Skagamaðurinn Oliver Stefánsson mun leika á ný með uppeldisfélaginu í Bestu deild karla á næsta tímabili. ÍA og Breiðablik komust að samkomlagi um félagaskipti Olivers rétt fyrir áramót. Oliver gerir samning til tveggja ára eða út leiktíðina 2025. Oliver er fæddur árið 2002 en hann fór til...
„Framundan eru nýir tímar hjá mér og ég byrja á góðu fríi. Ég sé svo til hvað ég tek mér fyrir hendur en ég mun ekki vinna meira sem klippari,“ segir Gísli J. Guðmundsson, betur þekktur sem, Gísli rakari. Carmen Llorens hefur gengið frá kaupum...
Kjörinu á Íþróttamanni Akraness árið 2023 verður lýst þann 6. janúar 2024 í íþróttamiðstöðinni Garðavöllum við golfvöllinn. Bein útsending verður frá athöfninni á ÍATV. Íbúar á Akranesi geta tekið þátt í kosningunni – sem hófst í dag og stendur til 4. janúar. Smelltu hér til að...
Hjálparsjóður Rauða krossins fékk í lok nóvember rúmlega 1 milljón kr. frá skólasamfélagi Grundaskóla á Akranesi. Árlegur góðgerðardagur Grundaskóla sem ber nafnið „Við breytum krónum í gull“ til styrktar hjálparstarfi fyrir börn í neyð tókst vel – og lögðu fjölmargir leið sína í skólann til að...
Í október 2023 framkvæmdi umboðsmaður barna könnun meðal allra grunnskóla á landinu þar sem spurt var um reglur varðandi farsíma í skólum. Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í skýrslu um stöðu barna sem var lögð fram fyrir barnaþing 2023.Langflestir skólar hafa sett reglur um símanotkun nemenda og þar...
Alls voru 53 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 20. desember s.l. Frá þessu er greint á vef FVA – nánar hér.Jónína Víglundsdóttir áfangastjóri, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Heildarfjöldi nemenda við skólann á haustönn 2023 var 505. Þar af voru 407 nemendur...