Brimrún Eir klifraði sig inn á bikarmeistaramót Íslands

Það er ávallt nóg um að vera hjá félögum í Klifurfélagi Akraness. Um s.l. helgi lauk Íslandsmeistararöðinni sem fram fór í Klifurhúsinu í Reykjavík. Fjölmennur hópur keppenda frá Akranesi mætti til leiks og stóðu þeir sig með prýði.

Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var Brimrún Eir í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147 stig sem nægði henni annað sætið á mótinu á eftir Gabríelu Einarsdóttur sem hefur haldið forystu frá byrjun mótaraðarinnar.

Þar með hefur Brimrún Eir tryggt Klifurfélagi ÍA annað sæti í keppni um Íslandsmeistaratitilinn og þátttökurétt á Bikarmeistaramóti Íslands sem haldið verður í apríl, en sex efstu keppendurnir fá þátttökurétt á því móti.

Frá keppni í Klifurhúsinu í Reykjavík.
Frá keppni í Klifurhúsinu í Reykjavík.