Nótan ı Uppskeruhátíð tónlistarnema í Tónbergi

Svæðistónleikar Nótunnar 2017 fyrir Vesturland og Vestfirði verða haldnir í Tónbergi laugardaginn 18. mars kl. 14.  Á tónleikunum koma fram valin atriði frá 8 tónlistarskólum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarskóla Akraness.

Hér er því á ferðinni þverskurður af því besta frá nemendum tónlistarskólanna á þessu svæði. Atriðin eru fjölbreytt og spanna ýmsar stíltegundir, frá barokk til frumsaminnar tónlistar flytjenda, einleiksatriði og samspilsatriði í bland. Nemendurnir sem koma fram eru á öllum námsstigum, grunnstigi, miðstigi og framhaldsstigi.

Valnefnd velur 3 atriði tónleikanna til að koma fram á lokahátíð Nótunnar sem fram fer í Eldborgarsal Hörpu 2. apríl n.k.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Kaffisala í anddyri Tónlistarskólans

Þessa dagana fara samsvarandi svæðistónleikar fram á fjórum stöðum á landinu og því má segja að Nótan sé eins konar uppskeruhátíð tónlistarskólanna í landinu. Nótunni er ætlað að vera bæði hvatning í starfi skólanna og vekja athygli á því mikla og blómlega starfi sem fram fer í tónlistarskólum landsins.