Hvernig Ísland komst í hóp þeirra bestu – og hvað getur ÍA lært af því?

Hvernig getur örþjóð eins og Ísland eignast íþróttalandslið í fremstu röð í öllum sínum helstu hópíþróttum (knattspyrnu, körfuknattleik, handknattleik og hópfimleikum) – og það á sama tíma? Félagsfræðingurinn Viðar Halldórsson hefur nýlokið við gerð rannsóknar sem ætlað var að svara þeirri spurningu og eru niðurstöðurnar að finna í nýútkominni bók: „Sport in Iceland: How small nations achieve international success.“

Í tilefni af útkomu bókarinnar mun Viðar kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar í opnum fyrirlestri í Tónbergi (sal Tónlistarskólans á Akranesi), fimmtudaginn 18. maí, kl. 20.00.

Viðar mun jafnframt tengja niðurstöður rannsóknarinnar við áherslur í uppbyggingu knattspyrnudeildar ÍA, en Viðar hefur verið sérstakur ráðgjafi deildarinnar frá 2015.

Viðar Halldórsson er með doktorspróf í félagsfræði og starfar sem lektor við Háskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á því hvernig árangur einstaklinga og hópa og liða mótast af hinu félagslega umhverfi og birt rannsóknir þess efnis í ýmsum fræðitímaritum. Viðar hefur jafnframt sinnt ráðgjöf fyrir íslensk félagslið og landslið í íþróttum.