Hallbera í dómnefnd í samkeppni – miðar á Zöru Larsson í vinning

Hall­bera Guðný Gísla­dótt­ir, landsliðskona í knatt­spyrnu og leikmaður Djurgår­d­en í Stokk­hólmi situr í dóm­nefnd í samkeppni sem sænska ríkisstjórnin stendur að. Og áður en þú hættir að lesa þá getur þú unnið þér inn miða á tónleika með hinni þekktu Zöru Larsson í október ef þú tekur þátt!

Um er að ræða verkefni sem tengist feminískri utanríkismálastefnu en Svíar eru fyrsta ríkið sem er með slíka stefnu. Að þessu tilefni var sett á á laggirnar samkeppni þar sem safna á saman góðum hugmyndum sem tengjast jafnrétti. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fjölmiðlakona er einnig í þessari dómnefnd ásamt Hallberu.

Sænska tónlistarkonan Zara Larsson er væntanleg til Íslands um miðjan október og hvetur sænska sendiráðið á Íslandi ungt fólk til þess að velta fyrir sér jafnrétti samhliða komu tónlistarkonunnar sem er þekkt sem baráttukona fyrir jafnrétti.


Leikurinn eða samkeppnin fer fram á Facebook-síðunni Sama Virðing.


Þar er hægt að finna allar nánari upplýsingar um verkefnið en sig­ur­veg­ar­arn­ir vinna sér inn miða á tón­leika Zöru þann 13. októ­ber hér á Íslandi.

Hallbera ræddi um verkefnið í útvarpsþættinum K-100 í þættinum Magasínið og er hægt að hlusta á það í heild sinni hér fyrir neðan.  

Krambúðin toppur 2017