Stærsta árgangamót sögunnar hjá ÍA – 250 skráðir til leiks

Rúmlega 250 keppendur eru skráðir til leiks á árlegt árgangamót ÍA sem fram fer í sjöunda sinn laugardaginn 11. nóvember. Mótið hefur vaxið með hverju árinu sem líður og í ár er leikið í þremur deildum í fyrsta sinn.

Í lávarðadeild karla keppa leikmenn 40 ára og eldri spila í tveimur fjögurra liða riðlum, Ungliðadeild karla þar sem leikmenn 30-39 ára spila í tveimur fimm liða riðlum og síðast en ekki síst kvennadeild þar sem 5 lið etja kappi í einum riðli.

Árgangamót ÍA ber höfuð og herðar yfir önnur sambærileg mót hérlendis þar sem rúmlega 250 keppendur hafa skráð sig til leiks. Er þetta til marks um þá djúpstæðu hefð sem knattspyrnan skipar í hugum Skagamanna.

Riðlaskiptinguna má sjá hér á þessari mynd.

Að kvöldi laugardags verður svo haldin uppskeruhátíð árgangamótsins í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum þar sem árgangar hittast, skemmta sér og rifja upp gömul kynni. Mun Ingó Veðurguð halda uppi fjörinu á skemmtuninni.

Árgangamótið og kvöldskemmtunin er orðið einn af helstu og skemmtilegustu viðburðunum á Akranesi á hverju ári. Eru allir hvattir til að mæta í Akraneshöllina á laugardaginn kemur og fylgjast með gömlu kempum leika listir sínar og slást í för með árgöngum sínum á uppskeruhátíðna og eiga þar skemmtilega kvöldstund – þátttaka á árgangamótinu fyrr um daginn er ekki skilyrði heldur er kvöldskemmtunin opin öllum.

Árgangamótið hefst kl. 13:30 á laugardaginn í Akraneshöllinni. Þá opnar íþróttahúsið að Jaðarsbökkum dyr sínar fyrir gesti um kvöldið kl. 19:00 og stendur skemmtunin til um 1:00.

Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook síðumótsins.

Einar Georgsson og Árni Böðvarsson. Árgangamót ÍA 2016.
Árgangamót ÍA 2016
Valdís Eyjólfsdóttir. Árgangamót ÍA 2016.
Hallgrímur Ólafsson. Árgangamót ÍA 2016.
Sigurður Már Harðarson og Jóhannes Guðlaugsson.