Þrír nemendur frá Akranesi kjörnir í Stúdentaráð HÍ

Skagamenn eiga þrjá fulltrúa í Stúdentaráði Háskóla Íslands en kosið var í gær. Listi Röskvu hafði betur í kosningunni gegn lista Vöku. Röskva fær 18 sæti og Vaka 9 fulltrúa í 27 manna Stúdentaráð.

Úrslitin eru þau sömu og síðasta þegar kosið var í Stúdentaráðið.

Svana Þorgeirsdóttir (Vaka), Sigurður Ýmir Sigurjónsson (Röskva og Guðný Björk Proppé (Röskva) sitja því í Stúdentaráðinu á næsta kjörtímabili og óskum við þeim til hamingju með kosninguna.

Svana er dóttir Pálínu Ásgeirsdóttur og Þorgeirs Jósefssonar.

Hrafnkell Ásólfur Proppé og Anna Margrét Sveinsdóttir eru foreldrar Guðnýjar.

Ragnheiður Sigurðardóttir og Sigurjón Ólafsson eru foreldrar Sigurðar Ýmis.

Uppfært!: Vaka Lind Birkisdóttir af lista Röskvu er einnig með tengingu á Akranes. Faðir hennar er Skagamaðurinn Birkir Guðlaugsson og afi hennar og amma eru búsett á Akranesi.

Úrslitin á sviðunum fimm var sem hér segir:

Félagsvísindasvið
Jóna Þórey Pétursdóttir (Röskva)
Þórhallur Valur Benónýsson(Vaka)
Vaka Lind Birkisdóttir (Röskva)
Katrín Ásta Jóhannsdóttir (Vaka)
Benedikt Guðmundsson (Vaka)
Róbert Ingi Ragnarsson (Röskva)
Kristrún Helga Valþórsdóttir (Röskva)

Heilbrigðisvísindasvið 
Sigurður Ýmir Sigurjónsson (Röskva)
Theodóra Listalín Þrastardóttir (Röskva)
Leifur Auðunsson (Vaka)
Krister Blær Jónsson (Röskva)
Guðný Björk Proppé (Röskva)

Hugvísindasvið 
Pétur Geir Steinsson (Röskva)
Alexandra Ýr van Erven (Röskva)
Valgerður Hirst Baldurs (Röskva)
Þorgeður Anna Gunnarsdóttir (Vaka)
Vigdís Hafliðadóttir (Röskva

Menntavísindasvið
Jónína Margrét Sigurðardóttir (Vaka)
Ágúst Arnar Þráinsson (Röskva)
Kolbrún Lára Kjartansdóttir (Vaka)
Thelma Rut Jóhannsdóttir (Röskva)
Axel Örn Sæmundsson (Vaka)

Verk- og náttúruvísindasvið 
Laufey Þóra Borgþórsdóttir (Röskva)
Harpa Almarsdóttir (Röskva)
Svana Þorgeirsdóttir (Vaka)
Númi Sveinsson (Röskva)
Melkorka Mjöll Jóhannesdóttir (Röskva)

Nýkjörnir fulltrúar í Háskólaráði eru eftirfarandi:
Benedikt Traustason (Röskva)
Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir (Vaka)
Helga Lind Mar (Röskva)
Jóhann Óli Eiðsson (Vaka)