Steinunn Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Norðuráli

Steinunn Dögg Steinsen hefur verið ráðin framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfissviðs Norðuráls. Hún hefur unnið hjá Norðuráli frá árinu 2011 og gegndi síðast stöðu deildarstjóra umhverfismála á umhverfis- og verkfræðisviði.

Steinunn er með M.Sc. í efnaverkfræði frá Denmarks Tekniske Universitet, og lauk diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Ísland árið 2010.

Steinunn Dögg Steinsen.