SkagaTV: Niðurrif Sementsverksmiðjunnar gengur vel

Ásýnd Sementsverksmiðjunnar breytist mikið með hverjum deginum sem líður. Niðurrif á byggingum og búnaði Sementsverksmiðjunnar gengur samkvæmt áætlun hjá verktakafyrirtækinu Work North ehf.

Verkið er á áætlun og á undanförnum dögum var ofnhúsið og kvarnarhúsið rifið. Ofninn stendur einn eftir eins og sjá má á þessum myndum og í myndbandinu hér fyrir neðan.

Mikið brotajárn hefur safnast saman á svæðinu og í frétt skessuhorn.is kemur fram að 2-3 þúsund tonn af brotajárni skili sér í þessu verkefni.

Brotajárninu verður skipað út jafnóðum og er von á söfnunarskipi í Akraneshöfn í lok þessa mánaðar.

Hér er myndband sem tekið var frá Suðurgötunni föstudaginn 15. mars 2018.

Hér blasir ofninn við sem var uppistaðan í framleiðsluferlinu í Sementsverksmiðjunni. Ofnhúsið var rifið niður í þessari viku. Búast má við því að ofninn sjálfur verði rifinn í næstu viku. Nóg af brotajárni til staðar á svæðinu en gert er ráð fyrir að brotajárnið verði alls 2-3 þúsund tonn á verktímanum.