Lögreglan óskar eftir auknu eftirliti við innkomur í bæinn

Allar líkur eru á því að settar verði upp öryggismyndavélar eða bílnúmeramyndavélar við innkomur í Akraneskaupstað. Lögreglan á Vesturlandi lagði fram slíkt erindi á fundi bæjarráðs Akraness nýverið.

Bæjarráð tók jákvætt í erindið og úrvinnsla málsins er nú í höndum bæjarstjóra Akraness.

Málið verður unnið í samvinnu við sveitastjórana í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit.

Hver er þín skoðun á auknu eftirliti við innkomur á Akranes með bílnúmeramyndavélum?

Í fundargerð bæjarráðs er rætt um að setja upp eitthvað sem kallast  bílnúmeramyndavél.

Nýjustu eftirlitsmyndavélarnar sem eru á markaðinum bjóða upp á háskerpu í myndefni. Sé tilgangur t.d. að ná bílnúmerum eða öðrum smáatriðum þarf að velja myndavélar sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir slíkt.