„Dúlludúskar“ opna ísbúð á Írskum dögum – ekkert okur í gangi!

Vinkonurnar og „dúlludúskarnir“  Stefanía Líf Viðarsdóttir og Ásdís Hekla Kristjánsdóttir taka þátt í að krydda tilveruna á Akranesi á Írskum dögum.

Stefanía og Ásdís eru í 2. bekk en þær hafa staðið í ströngu að undanförnu að koma upp „ísbúð“ á milli Víðigrundar 7 og 9.

„Þetta var ekkert flókið, við slógum bara upp Euro-brettum og söguðum krossviðsplötur framan á, skrúfuðum þær á og svo máluðum við þetta bara bleikt“ segir Stefanía Líf við Skagafréttir en hún er ný útskrifuð úr 2. bekk.

Þær stöllur fá að sjálfsögðu helstu forkólfka Akraneskaupstaðar með sér í lið við slíkt tilefni. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness mun opna ísbúðina með formlegum hætti föstudaginn 6. júlí kl. 16.00.

„Ísinn sem verður í boði er ekta ítalskur kúluís og í boði verða tvær bragðtegundir, súkkulaði og jarðarberja. Við ætlum okkur ekkert að okra á fólki og því bjóðum við upp á mjög samkeppnishæft verð eða 100 kr. fyrir eina kúlu og 150 kr. fyrir tvær kúlur“ segir Ásdís Hekla en hún er 7 ára frumkvöðull.

Ættartréð:

Stefanía Líf Viðarsdóttir :
Foreldrar: Viðar Engilbertsson og Gyða Björk Bergþórsdóttir
Systkini: Ingunn Dís Viðarsdóttir.

 

Ættartréð:
Ásdís Hekla Kristjánsdóttir:
Foreldrar: Kristján Þór Guðmundsson og Hildur Hjaltadóttir
Systkini: Heiður Dís Kristjánsdóttir og Hjalti Rafn Kristjánsson

Ísbúð

Auglýsing