Þýtur í stráum ı Kór Akraneskirkju með útgáfutónaleika

Kór Akraneskirkju gefur út geisladisk í desember og fagnar því með útgáfutónleikum.

Upptökur á geisladisknum fóru fram í Vinaminni nýverið – og verða útgáfutónleikarnir í Vinaminni laugardaginn 15. desember n.k.

Forsala aðgöngumiða fer fram í Versluninni Bjargi við Stillholt.

Valgeir Guðjónsson söngvari og tónskáld verður sérstakur gestur á útgáfutónleikunum. Hljómsveitin sem leikur undir með kórnum er þannig skipuð:

Píanó: Viðar Guðmundsson
Kontrabassi: Jón Rafnsson
Fiðla: Kristín Sigurjónsdóttir
Gítar: Eyjólfur Rúnar Stefánsson
Einsöngur: Halldór Hallgrímsson
Stjórnandi: Sveinn Arnar Sæmundsson
Sérstakur gestur: Valgeir Guðjónsson söngvari og tónskáld