Undirskriftarsöfnun þar sem seinkun á vegbótum á Kjalarnesi er mótmælt

Auglýsing



Undirskriftasöfnun stendur nú yfir, þar sem seinkun vegbóta á Kjalarnesi er mótmælt og þess krafist að undirbúningur framkvæmda hefjist strax. 

„Við undirrituð lýsum yfir gríðarlegum vonbrigðum okkar yfir því að fjármagn til vegabóta á Vesturlandsvegi um Kjalarnes, hafi verið skorið niður í vegaáætlun og því fyrirsjáanlegt að óskilgreind seinkun verði á því að vegurinn verði endurbættur.

Um leið og við mótmælum harðlega, skorum við á samgönguyfirvöld að endurskoða áætlanir sínar og hefja strax undirbúning við breikkun vegarins í a.m.k. 2 + 1 og aðskilnað akstursstefna, þannig að framkvæmdir megi hefjast strax á þessu ári.

Vegurinn um Kjalarnes er þriðji umferðarþyngsti vegur landsins. Hann er eina stofnæðin út frá höfuðborginni, sem ekki hefur verið breikkuð. Slys og óhöpp eru tíð á veginum og ljóst að hann er tifandi tímasprengja. Við viljum framkvæmdir strax! “

Smelltu hér til að skrifa undir eða á myndina hér fyrir neðan:

Auglýsing



Auglýsing